Sunday, October 08, 2006

Frekjuhundur




Ég er ekkert frek!

Friday, September 29, 2006

Karl í krapinu


Já...nú skal segja frá hvað ég er búin að vera mikill bjáni síðustu daga.

Síðustu helgi hélt ég upp á afmælið og jújú það var ágætt! Hurðin af klósettinu datt bara af og ég veit ekki hver gerði það, en Snædís var að segja mér að það væri verið að slúðra um það að ég hafi verið svo reið í afmælinu að ég hefði bara brotið hurðina. Ég var ekkert reið þetta kvöld...ég var svo sem ósköp róleg. Það var nú einhver sem hjálpaði mér að laga hana, en hún var laus að ofan en ekki að neðan. Einhvern tímann í kvöldið þurfti ég svo voðalega mikið að pissa að ég fór á klósettið og þurfti að skella henni frekar fast til þess að geta lokað og læst. En þá kom bobb í bátinn! Hurðin var einhvern veginn ekki rétt í og ég var læst inni, í mínu eigin afmæli. Ég fékk sjúklega mikla innilokunarkennd og var byrjuð að skjálfa, næstum farin að grenja og reyndi eins og ég gat að opna en nei, það gekk ekki. Ég farin að sjá fram á það að ég myndi sprella inn á klósetti það sem eftir væri af teitinu. En síðan hringdi ég í Sólveigu, hún og Þorvaldur voru bjargvættar mínir.
Annað bjánalegt:
Njáluferðin góða. Ég og Sólveig lúlluðum vært í rútunni og hlustuðum saman á Kumpánalög. Ekki leið af löngu að ég mér fór að líða illa í mallanum. Ég veinaði og reyndi að koma mér í þægilegar stellingar en ældi síðan á Bergþóruhvoli til að heiðra Njál, Bergþóru og Njálssyni. Á leiðinni heim fann ég að mér leið mjög illa og hljóp fremst í rútuna, lamdi í sætið hjá kennaranum og gaf henni merki um að ég þurfti að gubba. Bílstjórinn var salla rólegur og sagði bara: "Stoppa núna? haaaa? Hérna???" á meðan að ég var að kúgast í rútunni en krakkarnir í rútunni voru ekkert sérlega ánægðir með þetta og sögðu: "HVAÐ ER Í GANGI...Oooooh". Sólveig öskraði: "DRÍFÐU ÞIG AÐ STOPPA, HÚN ER AÐ FARA AÐ ÆLA" á bílstjórann. Síðan fór ég út og vann mitt verk meðan að allir í rútunni horfðu á mig og pínlegt var það nú að koma aftur í rútuna því margir hverjir horfðu á mig með undrandi augum.


Gubb er fyndið og gubb er skemmtilegt
Gubb er vinur okkar allra
Nú skulum við fara að leika við gubb

Monday, August 14, 2006

Gay for a day

Það var aldeilis gaman að samgleðjast samkynhneigðum á gay pride um helgina! Ballið var meiriháttar! Ég reyndi nú að finna hommann innra með mér og já, ég var nú svolítið skotin í hommunum sem ég dansaði við þarna :)

Annars eru bara 2 dagar þangað til að ég fer til Belgíu á Pukkelpop með Kára og ég segi bara hí á ykkur sem heima sitjið!
Radiohead
The Knife
Beck
Gomez
Tiga
Psapp
Massive Attack
Scissor Sisters
Eagles of death metal
Arctic monkeys
Placebo
Daft Punk
Belle&Sebastian
Yeah Yeah Yeahs
Mylo
Justice
Hot Chip
!!!
TV on the radio

og svo fleiri ætlum við að sjá :)

Tuesday, July 18, 2006

plömmer

Hvað varð um:



Að veifa eins og kóngafólkið?


Að steita hnefanum og spyrja: Viltu einn á lúðurinn?



Að lemja alltaf í öxlina á þeim sem átt var við samræður?

Bévítas ávanar :)

Hér eru nokkrar (margar) myndir frá París, sem tók mig 3 mánuði að setja á inn á svona síðu, því ég er löt:
www.pbase.com/smurfalicious
www.pbase.com/smurfalicious2
www.pbase.com/smurfalicious3
www.pbase.com/smurfalicious4
www.pbsae.com/smurfalicious5
www.pbase.com/smurfalicious6

Monday, June 05, 2006

Bölvans vesen

















Tíðir
Blæðingar
Túr
Rósa frænka
Að hafa á klæðum
Blooders
Period
Að blæða út
Að verpa
Að vera biluð
Að vera á kvennatímabilinu

Friday, May 19, 2006

Maður lifandi!!!

Jæja, sei sei já!
Prófin loksins búin.
Eins og þeir, sem þekkja mig vel, vita þá er ég mikill aðdáandi eyrnatappa.











Ég var að enda við að lesa yfir stærðfræðibókina mína, síðasta prófdaginn, áður en ég fór í prófið. Með fiðring í maganum út af stressi, tók ég úr mér eyrnatappana en var svo heppin að ég sleit annan. Annar helmingurinn var semsagt fastur lengst inn í eyranu á mér og ég hugsaði með mér að ég væri orðin heyrnalaus á öðru eyranu! Þannig að ég fór í prófið, heyrnalaus á öðru eyra og gat ekki haft almennileg samskipti við fólk þangað til að ég fór til læknis og hún dróg eyrnatappann úr eyranu mínu með töng.
True Story
Prófin gengu samt sem áður vel. Náði öllu, HALELÚJAH!


Ég vil koma því á framfæri að nafn síðunnar er Prumpi Töff en margir vilja halda að það sé prump it off. En þið megið svo sem ráða hvernig þið lesið þetta :)

blööö

Tuesday, May 09, 2006

Njörður

Heeeey!
Ég ætlaði að láta þessa síðu bara "feida áút" sem hefði tekist mjög vel ef ég hefði ekki gerst svo gáfuð að skrifa þetta blogg akkúrat núna. Hvort sem er hefur enginn spurt mig: Hey ertu hætt að blogga? eða skrifað komment sem inniheldur þennan texta: Hey ertu hætt að blogga? Þannig að ég blogga fyrir sjálfan mig, til að eyða tíma og vegna þessa að mér leiðist :)
Merkilegt nok!

Ég uppgötvaði um daginn að ég var mun betri bloggari árið 2005 heldur en árið 2006. Ég las yfir bæði gamla bloggið mitt (
www.folk.is/kobbasussa) og þetta hérna og það má sjá að hitt er mun skemmtilegra en þetta blogg er shittó fokkó leiðinlegt. Hins vegar er ég líka leiðinleg og ljót þannig að nú er komin lausn:
Ég + blogg = bæði leiðinlegt og ljótt
( Ég skrifaði þetta til þess að ég gæti haft svona samræður, sem ég sakna frá mínum yngri gelgju árum:
- ÞÚ ert ekki leiðinleg, ég er leiðinleg, þú ert sko geðveikt skemmtileg!
- Nauts. Ég er gett leiðinleg og líka ljót. Þú ert bæði sæt og skemmtileg.
- Öh, þegiðu! Ég er sko ekki sæt! Þú ert sæt.
- Nei ég er líka feit......og svo framvegis)

Sögustund: Ég var að koma heim úr skólanum, nánar tiltekið úr prófi og ég var í Alladin buxunum mínum sem eru vel svartar.
Móðir yrti á mig: Tanja, buxurnar þínar er gegnsæar.
Ég ansaði: Nei mamma, það er óhugsandi!
Ég kíkti í spegilinn og sá ekkert athugavert við buxurnar mínar en spekúleraði mikið í þessu. Síðan fór ég aftur að speglinum og uppgötvaði að helvítans buxurnar mínar eru svo gegnsæar og ég er búin að ganga í þeim oft og mörgum sinnum svo að þið MH-ingar og bæjarrottur eru þá kannski búin að taka eftir því að ég geng stundum í gegnsæum, svörtum, alladin buxum og hafið þá séð minn lafandi bossa!

Þakkið Júlíu fyrir það að ég byrjaði aftur að blogga, hún hvatti mig til þess.


Þetta er ógeðslegasti hundakúkur sem ég hef séð. Þessi kúkur var á Rue Chomel í París, 7. hverfi og það var svo heitt að hann var bráðnaður á götuna. Það var ekki annað hægt en að taka mynd af þessu.

Ég er komin í átak...ég ætla að reyna að hætta að gera lítið úr þessari síðu og gera hana betri!
Ég kveð.